Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Neytendamál E-efni
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
E-efni Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
E-efni skiptast í nokkra yfirflokka og ótal undirflokka.

Helstu yfirflokkar


E100-E180 Litarefni
E200-E297 Rotvarnarefni
E300-E385 Þrávarnarefni
E400-E495 Bindi-, ýru- og þykkingarefni
E500-E530 Sýrustillar
E535-E585 Kekkjavarnarefni
E620-E900 Bragðaukandi efni eins og MSG (621)
E901-E927 Húðunarefni
E938-E949 Loftskipti og drifgös
E950-E967 Sætuefni
E999-E1520

Önnur efni sem ekki er skylt að tilgreina nánar
 Vísindanefnd ESB þarf að samþykkja notkun aukaefna í matvælum og setur reglugerðir um notkun þeirra.Mikil umræða hefur átt sér stað hin síðari ár um nauðsyn á notkun allra þessa aukaefna, ekki síst á Norðurlöndum og í Bretlandi.
Sannað þykir að notkun margra þeirra getur valdið óþoli og hegðunarvanda barna og unglinga.

Nýverið (2008) hefur ESB sett nýjar reglur um notkun ákveðinna litarefna, hinna svokölluðu Panglitarefna, sem t.d. eru notuð í sælgæti, drykki og frostpinna. Í framhaldi af því verður framleiðindum innan tíðar skylt að varúðarmerkja vörur sem innihalda þessi efni, þannig:
Getur haft óæskileg áhrif á hegðun og einbeitingu barna.

Áður höfðu vísindamenn í Bretlandi gefið út lista yfir þessi litarefni og hvatt fólk til að skoða innihaldslýsingu á vöru með tilliti til þessa.
  
Umrædd efni eru:

E102 Tatrazin
E104 Quinoli (gult litarefni)
E110 Sunset Yellow FCF
E122 Azorubin (rautt litarefni)
E124 Ponceau 4R
E129 Allura Red AC 

Heimildir
Vísindavefur HÍ: www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=197
Vefsíða Neytendasamtakana: www.ns.is
Vefsíða danskra neytendasamtaka: www.forbrugerraadet.dk/   
 

Almennar upplýsingar

Þjónusta Leiðbeiningastöðvar heimilanna er gjaldfrjáls og öllum opin:

mánudaga þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10 -14
sími: 552 1135

Fyrirspurnir má einnig senda á
lh@leidbeiningastod.is

Skjöl til útprentunar

excel.gif
Innkaupalisti
excel.gif
Magn á mann

Kvenfélagasamband Íslands

www.kvenfelag.is