Hrefnukjöt í karrýrjómasósu

0.0/5 hattar (0 atkvæði)

Ingredients

  • 500 g hrefnukjöt
  • 2 bananar
  • ½ tsk salt
  • pipar
  • ½ tsk rósmarín
  • 1 ½ dl rjómi
  • ½ -1 tsk karrý (eftir hvað það er sterkt)
  • smjör eða matarolía til steikingar

Directions

  1. Skerið kjötið í 2ja sm þykkar sneiðar og berjið aðeins með handarjaðrinum.
    Steikið á pönnu þar til þær fá góðan lit.
    Raðið sneiðunum í eldfastmót og kryddið með salti og rósmarín (pipar ef vill).

    Afhýðið banana, kljúfið og skerið hverja lengju í 4 bita, raðið þeim ofan á kjötið í mótinu, ávala hliðin á að snúa upp.
    Setjið karrýið út í rjómann og hálfþeytið hann og hellið honum síðan yfir kjötið.

    Bakið í vel heitum ofni (ca 200°) í 20 til 25 mín.

    Borið fram með hrísgrjónum eða kartöflum, grænmetissalati og sýrðum rauðrófum eða sýrðum gúrkum.

    Uppskrift: Sara Hólm.