Jógúrtís með ananas

0.0/5 hattar (0 atkvæði)

Ingredients

  • 200 g ananaskurl (úr dós)
  • 120 g ananassafi
  • 1 ½ msk flórsykur
  • 120 g sýrður rjómi (10%) eða grísk jógúrt
  • 100 g léttjógúrt með kiwi og perum
  • 1 msk sítrónu- eða appelsínusafi

Directions

  1.  

    Sigtið ananasinn og hellið safanum í skál. Geymið kurlið í kæliskáp. Hrærið saman sykri, jógúrt, ananassafanum og sýrðum rjóma og smakkið til með sítrónu eða appelsínu safa.

     

  2. Blöndunni hellt í í ílát og fryst í ca 4 klst. Þá er ísinn tekin aftur úr frysti og ananaskurlinu hrært vel saman við.
    Fryst aftur í ca 4 klst.