Rabarbarasaft með vatni

0.0/5 hattar (0 atkvæði)
  • Complexity: easy
  • Origin: Saft

Ingredients

  • 1 kg rabarbari
  • 1/2 lítri vatn
  • 375-500 g sykur (magn fyrir hvern lítra af saft.)

Directions

  1. Rabarbarinn og vatnið eru sett í pott og hitað við hæga suðu þar til rabarbarinn er mjúkur og á að hræra í annað slagið. Þessu er hellt í síu og vökvinn látinn drjúpa af í pott þar sem sykrinum er blandað saman við. Saftin er látin sjóða í 10-20 mínútur og er síðan sett á flöskur. Athugið að flöskurnar séu alveg hreinar .

    Við mælum með því að flöskur séu skolaðar með rotvarnarhreinsi áður en saftin er sett í þær en hann fæst í matvöruverslunum.