Vatnsdeigsbollur I

4.0/5 hattar (5 atkvæði)

Ingredients

  • 4 dl vatn
  • 100 g smjörlíki
  • 4 dl hveiti
  • 4-5 egg (eftir stærð)
  • hjartarsalt á hnífsoddi

Directions

  1. Smjörlíki og vatn er soðið saman í potti. Hveiti og hjartarsalti (+salti ef það er notað) er sáldrað út í og hrært vel með þeytara þangað til deigið verður gljáandi og sleppir bæði þeytara og potti. Látið aðeins kólna.

  2. Deigið sett í hrærivélaskál. Eggjunum slegið saman og hrært smátt og smátt saman við. Nú á deigið að vera þétt og samfellt.

  3. Sett á bökunarplötu klæddri bökunarpappír með tveimur skeiðum eða sprautað í toppa með rjómasprautu.

  4. Ofninn stilltur á 220° og bollurnar látnar í heitan ofn. 

    Ekki má opna ofninn á meðan á bakstri stendur stendur.

    Bakað í 15 mín. Og þá er hitinn lækkaður í 150° og bakað áfram í 10 mín.

  5. Bollurnar eiga að vera fallega ljósbrúnar, léttar og frekar stökkar.
    Ágætt að prófa að taka eina bollu og gá hvort hún er bökuð í gegn, ef svo er ekki má láta þær bakast ca 5 mín. til viðbótar.
    Ath. Ekki opna ofninn fyrstu 20 mínúturnar, þá falla bollurnar.

  6. Vatnsdeigsbollur má frysta bakaðar án fyllingar eða deigið óbakað. En bestar eru bollurnar nýbakaðar.  Uppskriftin dugar í um það bil 20 bollur.