Kúrbítur og eggaldin

0.0/5 hattar (0 atkvæði)

Ingredients

  • Stórt eggaldin eða kúrbítur

Directions

  1.  

    Eggaldin er skorið í sneiðar eftir endilöngu, strá salti á þær og látið liggja í ca 10 mín. Þurrkað með pappír og penslaðar með olíu. Snúa oft á meðan á steikingu stendur. Strá að lokum þurrkuðu eða fersku oreganó og basilikum yfir og bera sítrónusneiðar fram með.
    Það má líka skera grænmetið þversum í sneiðar og steikja í vel heitri olíu á pönnu. Kryddað og borið fram á sama máta. 

  2. Næringargildið í kúrbít er ekki hátt, en hann inniheldur þó eitthvað af A-, B- og C-vitamíni ásamt kalki og járni.

    Mjög gott er að steikja kúrbít á pönnu ásamt öðru grænmeti og nota sem meðlæti með kjöti eða fiski. Einnig er kúrbítur góður í heita grænmetisrétti, þá steiktur á pönnu í olíu. Einnig má steikja hann í ofni ásamt fleira grænmeti. t.d. sætum kartöflum og lauk, jafnvel dreifa osti yfir og nota sem meðlæti eða léttan málsverð þá gjarnan með brauði.
    Það má líka grilla kúrbít, pensla með olíu og setja beint á grillið eða marínera hann áður í olíu með góðu kryddi.
    Þá má rífa hann niður og nota í brauðbakstur. Eða skera hann í fína strimla og setja í salat.
    Gott er að sjóða kúrbít ásamt brokkolí í léttsöltu vatni í ca 10. mín. Mauka síðan og þykkja með grænmetissúpu.

    Best að skera hann í sundur eftir endilöngu og fræhreinsa. Ekki er nauðsynlegt að afhýða kúrbít.
    Ath. að kúrbítur þarf t.d. mun styttri eldunartíma en kartöflur.