Frysting matvæla- geymsluþol í frysti

Hversu lengi endist matur í frysti? Fáðu svör hér:

appetite 1238477 640Með því að geyma matvæli í frystinum heldur maturinn næringarinnihaldi, bragði og útliti – að minnsta kosti í einhvern tíma.

Hins vegar getur matur ekki enst að eilífu í frystinum. Áferð, lykt og bragð breytist. Engin verður hins vegar veikur af því að borða mat sem hefur verið lengur í frystinum en ráðlagður tími gefur upp, því bakteríuvöxtur hættir við mínus 10 gráður á Celsíus. Gæði matvælanna rýrist einfaldlega.

Þú gætir þurft að endurpakka matnum áður en þú setur hann í frysti. Ekki er víst að upprunalegu umbúðirnar henti frosti.

Hér er listi yfir ráðlagt geymsluþol ýmissa matvæla í frysti.

  • Tilbúnir réttir: 1-3 mánuðir í frysti.
  • Grænmeti: 6-12 mánuðir eftir umbúðum og tegund grænmetis.
  • Ávextir: 10-12 mánuðir.
  • Pylsur: 2-3 mánuðir.
  • Magurt svínakjöt: um það bil 6 mánuðir.
  • Feitt svínakjöt: um það bil 3 mánuðir.
  • Hakkað kjöt: um það bil 4 mánuðir.
  • Reykt kjöt: 4-6 mánuðir.
  • Kjúklingur: 8-10 mánuðir.
  • Nautakjöt: um það bil 10 mánuðir.
  • Lambakjöt: um það bil 10 mánuðir.
  • Reyktur fiskur: um það bil 3 vikur.
  • Fiskhakk: 1-2 mánuðir.
  • Feitur fiskur: 2-3 mánuðir.
  • Magur fiskur: 3-6 mánuðir.

Stundum þarf að endurpakka því sem fer í frystinn, notið viðurkenndar umbúðir sem merktar eru undir matvæli og sem þola frost. Athugið að nestispokar henta ekki fyrir frost, plastið í þeim er of þunnt. Notið poka sem eru sérstaklega merktir fyrir frost.  Best er að lofttæma ílát og poka.  Ekki setja í of stór ílát, loftið skemmir fyrr.   Pakkið í minni skammta, ekki er víst að frystirinn geti fryst stór stykki nægilega hratt. Pakkið helst í skammtastærðir sem passa þinni fjölskyldu svo það sem þú tekur úr frystinum fari ekki forgörðum.  

 

Afþíðing:

Frosinn matvæli ætti helst að afþíða í kæli. Bakteríur vaxa hægar í kæli en við stofuhita og fjölga sér hratt ef maturinn verður of heitur við afþíðingu.

Til dæmis, ef þú setur frysta matarafganga á eldhúsbekkinn til að þiðna, geta bakteríur vaxið yfir daginn vegna þess að yfirborðið hitnar þó að kjarninn sé enn frosinn.

Því er best að afþíða frosið kjöt, fisk og alifugla í kæli.

 

 

 

Heimild: dönsku neytendasamtökin. 

  • Friday, 29 desember 2023