Vitundarvakning um fatasóun - myndbönd um leiðbeinandi fataviðgerðir

Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) hefur í samstarfi við Saumahorn Siggu gefið út þrjú myndbönd með algengum viðgerðum á fatnaði.   Myndböndin eru hluti af verkefninu Vitundarvakning um fatasóun sem KÍ hefur unnið að síðastliðin ár með stuðningi frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytini.

Myndböndin sína einfaldar aðferðir við algengar viðgerðir.

Þau eru: að þrengja streng, að stytta buxur og að gera við gat.

Myndböndin er hægt að sjá hér og á Youtube rás Kvenfélagasambands Íslands.