Vinnusmiðja - Fatabreytingar

Vinnusmiðja – Fatabreytingar

Vinnusmiðja Fatabreytingar á vefKvenfélagasamband Íslands og Leiðbeiningastöð heimilanna bjóða þér að taka þátt í einstakri vinnusmiðju í tengslum við verkefnið Vitundarvakning um fatasóun í samstarfi við Saumahorn Siggu.

Vinnusmiðjan hefur það að markmiði að hvetja til þess að flíkum sé gefin lengri líftími til að minnka kolefnisfótspor textíls. Smiðjunni er ætlað að auðga hugmyndaflug þátttakenda varðandi nýtingu á flíkunum í fataskápnum. Fjallað verður um mismunandi möguleika á áframhaldandi notkun; kennt verður hvernig hægt er að breyta flík svo hún öðlist nýtt líf.

  Áttu flík sem:

  • Passar þér ekki lengur en þig langar að nota?
  • Þú hefur keypt en lítið sem ekkert notað?
  • Þig langar að „poppa upp“?

Í vinnusmiðjunni förum við saman í hugmyndaflæði varðandi hverja einustu flík. Við hjálpumst að við að finna skemmtilegar lausnir á breytingum og förum í gegnum ferlið „hugmyndaflæði – flokkun – greining – val – framkvæmd“ 

Þegar besta hugmyndin hefur verið mótuð, breytir þú flíkinni í einstaka „nýja, notaða flík“ sem enginn annar en þú átt. Markmiðið er að þátttakendur virki sitt eigið hugmyndaflæði og öðlist sjálfstraust til að halda áfram að endurnýta og breyta flíkum í fataskápnum í stað þess að losa sig við þær.

Vinnusmiðjan er í eitt skipti í senn og stendur yfir í 4 klst. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ljúki sínu verki á þessum tíma. Fjöldi á vinnusmiðjuna er hámark 8 manns og verð kr. 12.000 Að lokinni vinnusmiðju gefst þátttakendum tækfæri á að vera með í lokuðum hópi á Facebook þar sem skipst er á hugmyndum og gefin ráð varðandi endurnýtingar á fatnaði og fataefnum.

Þú kemur með saumavél, skæri og 1-2 flíkur sem þú vilt breyta. Ef þú átt efni, endilega taktu þau með þér.

Innifalið í verði:

  • Kaffiveitingar í boði kvenfélagskvenna.
  • Leiðbeiningar, utanumhald og ráðgjöf
  • Efni fyrir breytingar
  • Tvinni og ýmislegt smotterí
  • Aðgangur að lokuðum Facebookhópi

Leiðbeinandi á námskeiðinu er:  Sigríður Tryggvadóttir sem er saumakona úr Kópavogi og rekur þar Saumahorn Siggu. Hún hefur saumað í mörg ár og leggur áherslu á endurnýtingu gæðaefna og fatabreytingar. Í Saumahorninu saumar hún og selur sína eigin hönnun auk þess að bjóða uppá saumanámskeið og vinnusmiðjur.  Kvenfélagskonur verða innan handar við saumaskapinn á námskeiðinu.

Vinnusmiðjurnar verða haldnar  í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum Túngötu 11. nóvember og 17. nóvember klukkan 18:00- 22:00.  

Skráðu þig hér til að tryggja þitt sæti á námskeiðinu.

Hægt er að fræðast meira um Saumahorn Siggu á heimasíðunni, saumahornsiggu.is Hún er líka á Facebook og Instagram @saumahornsiggu