Hakkréttur

1.0/5 rating 1 vote

Ingredients

  • 400 g nautakjötshakk
  • 1 stór laukur
  • 1 tsk salt
  • ½ tsk paprikuduft
  • ½ tsk Season All
  • svartur pipar e. smekk
  • Deig
  • 4 egg
  • 1 lítil dós jógúrt, hrein
  • 1 dl mjólk
  • 12 msk hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 5 msk olía

Directions

  1. Hakkið brúnað í olíu á pönnu ásamt lauknum. Kryddað eftir smekk.
    Eggin eru eru þeytt vel saman ásamt jógúrt, mjólk og olíu. Hveiti og lyftidufti hrært saman þangað til blandan verður jöfn.

  2. Að síðustu er svo hakkinu bætt út í og hrært vel.
    Blöndunni er hellt í litla ofnskúffu eða eldfast mót (30x25 cm).


  3. Rétturinn settur í kaldan ofninn og hann stilltur á 200° hita. Bakað í ca 30 mín. eða þar til rétturinn er gullinbrúnn á að líta.
    Þá er slökkt á ofninum og látið bíða í 10 með lokaða ofnhurðina.

  4. Borið fram með grænu salati, tómötum, olívum, fetaosti í olíu.